16.01.1945
Sameinað þing: 84. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2016 í B-deild Alþingistíðinda. (5564)
Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.
Forseti (GSv):
Ég vil taka það fram, að það er sameiginlegur áhugi allra að ljúka þessu þingi sem fyrst, en nú hefur svo skipazt, að eigi hefur tekizt að ljúka málum, sem þó hljóta að fá afgreiðslu, eins og hæstv. forsrh. gat um.
Nú hef ég litið til, hversu háttar í deildum, og þar sem ýmis mál voru ekki nægilega undirbúin þar, vænti ég að geta lokið fleiri málum í Sþ. Mun nú þó ráðlegra, að næstu daga verði haldnir fundir í deildum. Það, sem nú er eftir á dagskrá, er á þá lund, að flestu verður eigi lokið, en þó er hér eitt mál, sem lengi hefur þvælzt á dagskrá, en það er 6. mál, og teldi ég æskilegt að koma því frá, ef eigi verða langar umr. — Ég tek þó fyrst fyrir 11. mál, en að því loknu 6. mál.