12.02.1945
Neðri deild: 127. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2018 í B-deild Alþingistíðinda. (5570)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Jón Pálmason:

Ég mótmæli því, að þessi mál séu tekin út af dagskrá, þá loks þau koma til umr. aftur. Það er búið að draga þessi mál á langinn vikum og mánuðum saman, og ég sé því enga ástæðu til að taka þau út af dagskrá, þegar þau eiga að fá afgreiðslu, þótt einn þm. sé fjarverandi.