30.01.1945
Sameinað þing: 89. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 557 í D-deild Alþingistíðinda. (5597)

243. mál, raforkuveita Reyðarfjarðarhrepps

Frsm. (Helgi Jónasson):

Herra forseti. — Fjvn. hefur haft till. þessa til athugunar á fundum sínum, og hefur hæstv. samgmrh. mælt með samþykkt hennar. Fyrir n. lá og grg. frá Rafmagnseftirliti ríkisins, og er forstöðumaður þess hlynntur málinu.

Óska ég, að málinu verði vísað til síðari umr.