16.02.1945
Sameinað þing: 94. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 627 í D-deild Alþingistíðinda. (5791)

284. mál, leiga á færeyskum skipum o.fl.

Forseti (GSv):

Það er nú svo, að sumir hv. þm. eru búnir að tala sig dauða í þessu máli, og svo er ástatt um þann háttv. þm., sem nú settist niður.

En ef hv. þm. vilja fresta umr. til kl. 9, þá er það frjálst. (EystJ: En því ekki til morguns?) Jú, að sjálfsögðu, þeir, sem þegar eru dauðir. En ef hv. þm. vilja ekki sættast á þetta, verður að leita atkv., þar sem ekki er unnt að fara eftir óskum eins og eins manns.