12.09.1944
Neðri deild: 48. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2050 í B-deild Alþingistíðinda. (5801)
Fjarvistir þingmanna
Sigurður Bjarnason:
Ég vildi leyfa mér að hreyfa því við hæstv. forseta, hvort ekki hafi komið neitt til orða milli forseta deilda og forseta Sþ., að einhverjar sérstakar ráðstafanir yrðu gerðar í tilefni af því, að svo virðist nú daglega sem forsetar eigi í mjög miklum örðugleikum, vegna þess að þm. fást ekki til þess að sækja þingfundi. Öllum þingheimi er ljóst, að þetta er Alþingi til hins mesta vansa, og vildi ég beina því til hæstv. forseta þessarar d., að hann gerði sérstakar ráðstafanir til þess í framtíðinni að firra d. þeim vansa, sem henni vissulega — og þinginu í heild — er að slíku framferði þingmanna.