04.12.1944
Sameinað þing: 69. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 457 í B-deild Alþingistíðinda. (591)

143. mál, fjárlög 1945

Forseti (GSv):

Hæstv. samgmrh., Emil Jónsson, er talaði af hálfu Alþfl., hefur lokið máli sínu, og er þar með lokið þessari umferð útvarpsumr.

Það hefur atvikazt svo, að andstöðuflokkur ríkisstj., Framsfl., hefur ekki notið jafnlangs ræðutíma og hinir flokkarnir hver um sig, og verður þeim mínútum, sem á skortir, bætt við ræðutíma Framsfl. við framhald útvarpsumræðna annað kvöld.