03.03.1945
Sameinað þing: 100. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 721 í D-deild Alþingistíðinda. (5926)

293. mál, hækkun framlags til nokkurra skóla

Frsm. (Lúðvík Jósefsson):

Herra forseti. — Ég get látið nægja um þessa þáltill. fáein orð. Fjvn. hefur haft till. til athugunar og rætt efni hennar við hæstv. fjmrh. og hæstv. menntmrh., og þeir hafa tjáð sig till. samþykka, og fjvn. leggur til, að þáltill. verði samþ. óbreytt.

Það virðist vera alveg augljóst mál um þá skóla, sem till. fjallar um, að ekki verði hjá því komizt að bæta þeim upp að einhverju leyti þá launahækkun, sem þeir verða að greiða vegna samþykktar launal.