10.02.1944
Sameinað þing: 14. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 762 í D-deild Alþingistíðinda. (5972)
28. mál, afkoma sjávarútvegsins
Lúðvík Jósefsson:
Hv. þm. N-Ísf. undraðist mjög, að till., sem ég er einn af flm. að (6. mál), gæti verið flutt af manni úr mþn. í sjávarútvegsmálum, þar sem verkefni n., sem þar er ráðgerð, félli alveg undir svið mþn. — Þetta er alrangt hjá honum. Enginn nm. í mþn. hefur látið sér detta í hug, að til mála kæmi, að hún hefði það með höndum að skapa sjómönnum og útvegsmönnum launakjör. Verkefni n., sem till. mín fjallar um. er algerlega annað en verkefni mþn., og þarf raunar ekki annað en bera þáltill. saman við þál. um mþn. til að sjá það. Hér er um algeran misskilning að ræða hjá hv. þm. Hitt er rétt hjá honum, að till. hv. 2. þm. S-M. nær inn á það svið, sem mþn. varðar, í verulegum atriðum, og hefur flm. (EystJ) skýrt tilgang sinn með rannsókn, er gerð yrði af sérfróðum mönnum, og skal ég ekki blanda mér í það á þessu stigi máls. Hitt vildi ég benda þm. á nú þegar, að ástæðulaust er að blanda svo saman verkefnum ólíkra n. sem hann gerði í ræðu sinni.