11.10.1944
Sameinað þing: 53. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 777 í D-deild Alþingistíðinda. (5987)
157. mál, öryggi umferðar yfir Ölfusárbrúna
Eiríkur Einarsson:
Herra forseti. — Það er alls ekki ætlun mín að leiða þetta í neina orðadeilu, — öðru nær. Ég ætla ekki að gera neina brtt. við þáltill., heldur sagði ég það til athugunar fyrir n., sem kemur til með að fjalla um till., að ég vildi, að hún athugaði þetta, sem ég minntist á. Lengra náði það ekki.
Hitt, sem hv. flm. hafði orð á, að vegamálastjórnin væri búin þegar að gera ráðstafanir um brúarvörzlu og ýtarlegar ráðstafanir að ýmsu leyti, þá er ekki nema gott um það að segja. — En það, sem hv. þm. talaði um, að hafa bæri algert traust til vegamálastjóra, það leiði ég alveg hjá mér. Það eru skiptar skoðanir um það. Og þó að Alþ. veiti því máli áherzlu, að hafa beri traust eftirlit með umferð yfir brúna til alhliða öryggis, þá álít ég það ekki úr vegi til samstarfs við vegamálastjórnina. Þess vegna er það skoðun mín, að ég álít rétt, að þetta sé tekið alhliða til athugunar af n., sem ég minntist á.