21.02.1944
Sameinað þing: 19. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 792 í D-deild Alþingistíðinda. (6018)

35. mál, hátíðarhöld 17. júní 1944

Flm. (Jónas Jónsson):

Eins og ég tók fram áðan, þá hefur verið gert ráð fyrir því, eins og hæstv. forsrh. sagði, að í væntanlegri n., sem annast á undirbúning hátíðahaldanna að Þingvöllum í vor, yrðu fimm menn, og nú sé ég, að stj. hefur tekið málið að sér með vissum hætti, sem ég hygg, að sé á þeim grundvelli, er ætlazt hefur verið til.

Það eru nú margir flm. þessarar till. á þskj. 42, og hef ég ekkert umboð fyrir þá, en ég vil aðeins segja fyrir mitt leyti, að mér þykir ráðlegt að fallast á þá till., sem hæstv. forsrh. ber hér fram, og mun sjálfur greiða atkv. á þann hátt.