05.10.1944
Sameinað þing: 52. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 812 í D-deild Alþingistíðinda. (6045)

151. mál, póstsamband milli Íslands og Ameríku

Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):

Herra forseti. — Það er á valdi Alþ., hvort það telur ástæðu til þess að samþ. till. um það að fela ríkisstj. að gera það, sem hún er búin að gera, en ég tel ekki, að ríkisstj. þurfi nein frekari fyrirmæli um þetta. Annars er það alveg á valdi Alþ., hvað það gerir í þessu máli.