15.01.1945
Sameinað þing: 83. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 907 í D-deild Alþingistíðinda. (6202)

226. mál, lendingarbætur í Flatey á Skjálfanda

Flm. (Jónas Jónsson):

Herra forseti. — Þessu máli er þannig háttað, að ríkissjóður er eigandi Flateyjar á Skjálfanda. Þarna eru góð fiskimið, og hafa eyjarbúar unnið að því um nokkurra ára skeið að gera viðunanlega bryggju og lendingarbætur fyrir vélbáta.

Þar sem ríkið er eigandi eyjarinnar, er ekki ósanngjarnt, að það gangi í ábyrgð fyrir láni, er nemi þriðjungi tilkostnaðar við verkið.