07.03.1944
Neðri deild: 27. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 936 í D-deild Alþingistíðinda. (6292)

55. mál, Þormóðsslysið

Fyrirspyrjandi (Finnur Jónsson):

Þar sem það mun koma í ljós við væntanlega birtingu á skýrslu sjódómsins, hvað vantar í skýrslu þá, er dómsmrn. hefur gefið út, get ég lokið umr. um þetta.

Eftir því sem mér er kunnugt, er skýrsla sjódómsins dags. snemma í ágústmánuði, og hefur aðalrannsókn þá verið lokið. Mér skilst því, að þeir tveir hæstv. ráðh., er hafa haft þetta mál með höndum, hafi lofað, hvor í sínu lagi og báðir saman, að skýrsla sjódómsins verði birt. Ég vænti þess því fastlega, að þeir aðstoði hvor annan í því, að þetta loforð verði uppfyllt sem allra fyrst.