10.06.1944
Sameinað þing: 31. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2056 í B-deild Alþingistíðinda. (6404)

Setning þings af nýju

Forseti (GSv):

Samkvæmt því, sem nú hefur mælt verið, hef jast fundir Alþingis á ný, og verða þeir háðir að minnsta kosti næstu viku alla. Ég skal geta þess, að ýmislegt viðkomandi hátíðahöldunum, sem fara fram 17. júní og þar um kring, verður tilkynnt þingmönnum nákvæmlega þegar upp úr helgi, og einnig um fyrirkomulag, sem á verður haft á væntanlegum þingfundi á laugardaginn kemur á Þingvelli.