02.03.1945
Efri deild: 140. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2062 í B-deild Alþingistíðinda. (6435)

Starfslok deilda

Magnús Jónsson:

Ég vil fyrir mína hönd og vonandi allra deildarmanna þakka hæstv. forseta árnaðaróskir hans. Og ég vil þakka honum fyrir góða, röggsamlega og þó hófstillta fundastjórn á þessu afar langa þingi, sem nú er að lokum komið, óska honum góðrar heimferðar og alls góðs. Vil ég biðja hv. dm. að rísa úr sætum. [Deildarmenn stóðu upp.]