02.03.1945
Neðri deild: 142. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2063 í B-deild Alþingistíðinda. (6437)

Starfslok deilda

forseti (JörB):

Þetta mun verða síðasti fundur þessarar deildar, og er nú starfi deildarinnar lokið að þessu sinni. Þar sem gerðabók síðasta fundar hefur ekki getað legið fyrir, þá mun ég síðar skrifa undir þessa fundargerð, ef hv. þdm. , mótmæla því ekki.

Ég vil þakka hv. þingdeildarmönnum fyrir gott samstarf hér í þessari deild nú, eins og svo oft áður, og um leið óska ég þeim allra heilla og blessunar á komandi tíð. Utanbæjarmönnum óska ég góðrar heimferðar og heimkomu.