07.12.1944
Efri deild: 84. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 673 í B-deild Alþingistíðinda. (774)

164. mál, prófessorsembætti í heilbrigðisfræði

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Með því að líkur eru til, að frv. um manneldisráð verði samþ. í þessari hv. d., og þar sem því eru tryggðir nægir starfskraftar og ég tel hins vegar eðlilegt, að frv. um stofnun slíks embættis sem þessa verði fellt inn í annað frv., sem hér liggur fyrir, segi ég nei.

2. gr. samþ. með 6 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 6 shlj. atkv.