12.12.1944
Neðri deild: 90. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 724 í B-deild Alþingistíðinda. (947)

96. mál, flugvellir

Frsm. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. — Ég hef við upphaf þessarar umr. gert grein fyrir þeim brtt., sem n. flytur, og hef litlu þar við að bæta.

Hæstv. ríkisstj. hlutaðist til um, að málið yrði tekið af dagskrá til frekari athugunar. Nú vil ég mælast til, að þeir, sem flutt hafa brtt., taki þær aftur til 3. umr., svo að málið geti gengið áfram.