13.12.1945
Neðri deild: 52. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2161 í B-deild Alþingistíðinda. (100)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Jörundur Brynjólfsson:

Það er ekki meining mín með þessum orðum, að ég vildi finna að gerðum hæstv. forseta. Ég þykist vita, að hann hefur gert sitt ýtrasta til þess að fá n. til að afgreiða málið. Og ég veit, að hann mun einnig ítreka þessar óskir. En dugi það ekki, þá vil ég vona að hæstv. forseti taki til þeirra ráða, sem hann hefur um afgreiðslu mála, og taki málið af n. og komi því til meðferðar í hv. d.