13.12.1945
Neðri deild: 52. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2161 í B-deild Alþingistíðinda. (101)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ég og hv. þm. N.-Þ. fluttum frv. um fiskimálasjóð, markaðsleit sjávarafurða o. fl. Það var flutt á fyrstu dögum þingsins. Sjútvn. tók afstöðu til þess 25. nóv. og klofnaði. Minni hl. gaf út nál. strax, en meiri hl. hefur ekki gefið út nál. Málið hefur ekki verið tekið á dagskrá í d., en ég ítreka óskir til hæstv. forseta um, að málið verði bráðlega tekið á dagskrá í d., enda þótt álit meiri hl. sé enn ekki komið.