13.12.1945
Neðri deild: 52. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2161 í B-deild Alþingistíðinda. (103)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Sigurður Kristjánsson:

Herra forseti. Að minni tilhlutun var farið að gera skriflegt nál. meiri hl., og sýndi ritari n. mér uppkast að því, sem ég var samþykkur. En svo vildi til, að þessi hv. þm. vék af þingi um stundarsakir, og mér láðist að ganga eftir því, hvar nál. væri niður komið. En ég skal rannsaka það nú þegar.