02.11.1945
Neðri deild: 21. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 872 í B-deild Alþingistíðinda. (1087)

44. mál, sláturfélag Skagfirðinga

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Það þarf ekki að hafa mörg orð um þetta mál. Það er mjög einfalt, og í nál. er frá því greint, að n. mælir með samþykkt frv. Og ég vil láta þá ósk í ljós við hv. d., að hún samþ. frv.