05.10.1945
Sameinað þing: 2. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (11)

Kosning fastanefnda

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Mér finnst full ástæða til að fresta kosningu nefnda. þar til næst til allra hv. þm. Það er von á einum hv. þm. til bæjarins mjög bráðlega, en þótt ef til vill sé ekki rétt að láta nefndakosningar bíða þar til hann er kominn, virðist mér sanngjarnt, að þær verði látnar bíða þangað til náðst hefur til allra þeirra hv. þm., sem komnir eru til bæjarins.