29.10.1945
Efri deild: 17. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 876 í B-deild Alþingistíðinda. (1107)

10. mál, jarðræktarlög

Frsm. meiri hl. (Þorsteinn Þorsteinsson) :

Ég sé ekki ástæðu til að hefja hér deilur við hv. þm. N.-M, um það, hvort þessi tvenn ákvæði skuli fylgjast að. En ég vil upplýsa það, að sú n., sem ég var kosinn í og hefur þessi mál til meðferðar, mun ekki skila áliti fyrr en næsta búnaðarþing kemur saman, og það mun ekki verða fyrr en næsta vetur. Það er þess vegna nokkuð seint að bíða eftir áliti þeirrar nefndar.