23.04.1946
Sameinað þing: 37. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2164 í B-deild Alþingistíðinda. (113)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Forseti (JPálm) :

Út af þessum aths. vil ég taka fram, að fyrir liggja milli 60 og 70 þáltill. óafgreiddar. Og ég sem forseti sameinaðs þings hef ekki fengið tíma nú alllengi, vegna deildafunda, til þess að hafa fund í sameinuðu þingi. Og það er gert ráð fyrir mjög stuttum fundi nú, til þess að koma þáltill. til n. og einnig til þess að afgr. háltill., sem ætla má, að litlar umr. verði um. Að öðru leyti mun ég taka þetta, sem hv. þm. hafa nú sagt, til athugunar fyrir næsta fund.