27.11.1945
Neðri deild: 40. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 886 í B-deild Alþingistíðinda. (1141)

10. mál, jarðræktarlög

Bjarni Ásgeirsson:

Ég vil aðeins mótmæla þeim skilningi hv. þm. A.-Húnv., að atriðið um fylgiféð komi af sjálfu sér. Því að þótt hætt verði að reikna styrki sem fylgifé, þá er þar með alls ekki sagt, að það fylgifé, sem greitt hefur verið samkv. l., skuli hætta að teljast sem slíkt, og er alveg sjálfsagt að taka slíkt fram í l., og virðist mér óviðkunnanlegt að hnýta því þannig aftan í formsatriði, eins og hér er gert.