15.11.1945
Efri deild: 31. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 915 í B-deild Alþingistíðinda. (1232)

68. mál, húsaleiga

Frsm. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Allshn. hefur athugað frv. þetta, og þeir þrír nefndarmenn, sem tóku þátt í afgreiðslu málsins, voru allir sammála um, að frv. horfði til stórra bóta og væri óumflýjanlegt eftir hæstaréttardóm, sem nýlega er fallinn í gagnstæða átt við það, sem frv. gerir ráð fyrir. — Af þessum ástæðum leggur n. til, að frv. verði afgr. óbreytt út úr hv. deild.