07.11.1945
Neðri deild: 26. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 917 í B-deild Alþingistíðinda. (1247)

34. mál, sala spildu úr Kjappeyrarlandi

Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):

Herra forseti. Landbn. hefur haft þetta mál með höndum og hefur orðið sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ. Þó hefur n. gert þá breyt., að hún leggur til, að eftir fyrstu gr. komi ákvæði um það, að námuréttindi skuli undanskilin. Það mun vera regla, þegar ríkið selur jarðeignir, og telur n. sjálfsagt, að svo verði einnig hér. — Fleira sé ég ekki ástæðu til að segja um þetta, en vísa til álits n. á þskj. 95.