15.11.1945
Neðri deild: 33. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 918 í B-deild Alþingistíðinda. (1253)

34. mál, sala spildu úr Kjappeyrarlandi

Eysteinn Jónsson:

Það er eins og hv. þm. Mýr. gat um, að það hafa komið skeyti frá oddvita og hreppstjóra Fáskrúðsfjarðarhrepps, þar sem þeir láta í ljós óánægju sína yfir þessu máli. Landbn. mun hafa falið form. sínum að hafa samband við þessa menn til að heyra ástæður þeirra. Við flm. teljum það eðlilegt, og þess vegna er ég heldur meðmæltur, að umr. sé frestað, þar til hv. þm. A.-Húnv. hefur gefið þær upplýsingar, sem hann hefur að gefa.