14.11.1945
Neðri deild: 32. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2169 í B-deild Alþingistíðinda. (135)

Varamaður tekur þingsæti o. fl.

forseti (BG) :

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Sakir annríkis heima fyrir verð ég að hverfa af þingi um sinn, og óska ég þess með skírskotun til 144. gr. laga nr. 80 7. sept. 1942, um kosningar til Alþingis, að næsti varamaður flokks míns, Ásmundur Sigurðsson, taki sæti á Alþingi í minn stað að liðnum deginum í dag.

Alþingi, 13. nóv. 1945.

Þóroddur Guðmundsson,

2. landsk. varaþm.

Samkvæmt þeirri ósk, sem í bréfi þessu greinir, tekur næsti varamaður Sósfl., herra Ásmundur Sigurðsson, nú sæti í deildinni. Kjörbréf hans hefur áður verið samþ. af Alþingi.