21.11.1945
Neðri deild: 36. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 949 í B-deild Alþingistíðinda. (1364)

42. mál, fyrirhleðsla Héraðsvatna

Frsm. (Jón Sigurðsson) :

Herra forseti. Það er hérna brtt., sem landbn. hefur flutt við frv. í samráði við landbrh.

Það hefur verið unnið að þessari fyrirhleðslu fram á haust, og vegamálastjóri sagði, að hann hefði látið gera hana, þó að héraðið hefði ekkert lagt af mörkum, en lagt fram fé til þess úr ríkissjóði, vegna hinnar miklu nauðsynjar verksins. — Ég orðlengi þetta svo ekki nánar, en vildi aðeins vekja athygli á þessu og vona, að brtt. fáist samþ.