19.11.1945
Neðri deild: 35. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 950 í B-deild Alþingistíðinda. (1377)

93. mál, ullarmat

Frsm. (Jón Pálmason) :

Herra forseti. Þetta litla frv., sem hér er flutt af landbn., er flutt að beiðni hæstv. landbrh. og hefur það eitt að geyma að færa borgun yfirullarmatsmanna til samræmis við aðrar greiðslur eftir launal., og er það um það bil þriðjungs hækkun frá því, sem verið hefur.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frv. Landbn. flytur það sameiginlega, og ég álít, að það þurfi ekki að vísa því til .n. aftur. Óska ég, að frv. gangi áfram sína leið.