14.12.1945
Efri deild: 49. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 953 í B-deild Alþingistíðinda. (1405)

94. mál, sala Staðarhöfða

Frsm. (Kristinn Andrésson) :

Herra forseti. Frv. þetta á þskj. 209 er um heimild fyrir ríkisstjórnina til að selja Innri-Akraneshreppi jörðina Staðarhöfða. Þetta frv. er flutt af landbn. Nd.

Það hefur verið leitað eftir kaupum á þessari jörð fyrir hreppsfélagið, en ekki einstaklinga, og í því augnamiði, að hægt væri að hefjast handa um ræktunarframkvæmdir. Landbn. d. er sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ.