14.12.1945
Efri deild: 49. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 955 í B-deild Alþingistíðinda. (1421)
106. mál, byggingarsamþykktir í sveitum
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Þetta frv., ef að 1. verður, heimilar sýslunefndum að gera byggingarsamþykktir fyrir sýslurnar, hver fyrir sig, og þannig koma því til leiðar, að meiri samvinna og samtök verði um það að koma upp húsum innan héraðanna en áður hefur verið. Það verður heimtað með þessum samþykktum, svo að hægt sé að löggilda þær, að það verður að vera viss fjöldi og meiri hluti alls staðar á samþykktasvæðunum, en fyrir því verða þær einnig að fá samþykki í sýslunefnd, og þaðan koma þær undir úrskurð stjórnarráðsins.
Þetta frv. kemur frá Nd. og hefur gengið þar í gegn án þess að nokkur brtt. hafi komið fram við það. Þetta mál var á búnaðarþingi lauslega rætt og athugað, og eftir því sem ég hef kynnzt þessu máli, bæði á búnaðarþingi og nú aftur í n., þá get ég ekki annað séð en það geti orðið til mikilla bóta, enda ekki verið að knýja neitt upp á neinn, heldur er hér aðeins um heimild að ræða. Ef héruðin vilja, þá geta þau hafizt handa um þetta og framkvæmt það. — Yfirleitt var landbn. sammála um að mæla með, að þetta frv. fái samþykki eins og það liggur fyrir.