06.11.1945
Neðri deild: 22. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 957 í B-deild Alþingistíðinda. (1428)

66. mál, sveitarstjórnarkosningar

Félags- og dómsmrh. (Finnur Jónsson) :

Ég get ekki fallizt á brtt. hv. 11. landsk. og vísa í því tilefni til grg. Í hreppsnefnd eru 3–7 menn, og er því ekki trygging fyrir því, að einn fjölskyldumaður gæti ekki ráðið öllu, ef leyft væri, að náin skyldmenni ættu samtímis sæti í henni.