31.10.1945
Neðri deild: 19. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 961 í B-deild Alþingistíðinda. (1455)

57. mál, vátryggingarfélög fyrir vélbáta

Flm. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Frv. þetta hefur verið rætt hér áður í þessari hv. d. og er því mönnum allkunnugt. Heimild sú, sem í gildi er fyrir vátryggingarfélög vélbáta, fellur úr gildi bráðlega, og hér er aðeins farið fram á framlengingu um óákveðinn tíma. Ég þarf víst ekki að minnast á það, að þetta er mikið hagsmunamál fyrir vélbáta.

Mælist ég til þess, að frv. verði vísað til 2. umr. og sjútvn.