19.12.1945
Neðri deild: 56. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 964 í B-deild Alþingistíðinda. (1474)

152. mál, gjaldeyrissjóður og alþjóðabanki

Fjmrh. (Pétur Magnússon) :

Herra forseti. Ef hv. Alþ. lízt á, að Ísland taki þátt í þessum stofnunum, þarf þetta frv. að fá afgreiðslu fyrir þingfrestun. Vildi ég því mælast til, að málinu verði vísað til 2. umr. nú þegar, þótt mér þyki hins vegar eðlilegt, að hv. þm. vilji kynna sér þetta mál.