06.11.1945
Neðri deild: 22. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1004 í B-deild Alþingistíðinda. (1602)
62. mál, þjóðjarðasala og kirkjujarða
Flm. (Pétur Ottesen) :
Herra forseti. Við hv. 2. þm. Skagf. höfum leyft okkur að bera þetta frv. fram.
Það hefur sýnt sig, að leiguliðar æskja þess að verða eigendur þessara jarða. En nú er svo, að það kostar ábúendur töluverða fyrirhöfn og einnig skriftir fyrir það opinbera að breyta lögunum í það horf, og því höfum við flutt frv. þetta til að greiða götu ábúenda. Við hv. 2. þm. Skagf. óskum þess, að hv. d. geti orðið sammála um að hrinda úr vegi þeirri fyrirhöfn, sem er samkvæmt núgildandi lögum fyrir þá, sem þetta vilja. Ábúendur eiga að hafa aðstöðu til þess nú að eignast þessar jarðir og reka þar búskap sem einkaeign.
Ég legg svo til, að málinu verði vísað til landbn., mér skilst, að þessi mál hafi sætt þeirri meðferð áður hér.