27.11.1945
Neðri deild: 40. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1013 í B-deild Alþingistíðinda. (1619)

62. mál, þjóðjarðasala og kirkjujarða

Frsm. (Jón Sigurðsson) :

Herra forseti. Það er alveg rétt athugað hjá hv. 1. þm. Árn., að það var alls ekki ætlun n., að þetta væri tekið svo bókstaflega, en það má vera, að það yrði gert eða að liggi fyrir möguleikar um það. Því kom mér til hugar, að bera mætti fram skrifl. brtt. um að bæta aftan við till. „önnur en til heimilisnota.“ Ég hef ekki borið mig saman um það við meðnm. mína, en fyrir engum okkar vakti að gera jarðeiganda svo harðkeypt, að hann fengi ekki slík hlunnindi til heimilisþarfa.