27.11.1945
Neðri deild: 40. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1013 í B-deild Alþingistíðinda. (1620)

62. mál, þjóðjarðasala og kirkjujarða

Sigurður Thoroddsen:

Till. þessi er flutt vegna tilmæla minna við 2. umr. Ég verð að taka undir það með hæstv. frsm., að ég ætlaðist ekki til, að þetta næði yfir þessi hlunnindi, ef þau væru svo lítil, að það skipti ekki máli. Ég fyrir mitt leyti vil fallast á þá brtt., sem hv. frsm. gat um.