19.11.1945
Efri deild: 33. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1025 í B-deild Alþingistíðinda. (1664)
23. mál, byggingar- og landnámssjóður
Frsm. meiri hl. (Eiríkur Einarsson) :
Ég vil taka það fram viðkomandi því, sem hv. þm. Barð. sagði nú, að ég get ómögulega fellt mig við það að álíta, að það sé í þessum l. ákvæði, sem hindri það, að stjórn byggingar- og landnámssjóðs geti tekið í taumana, ef henni sýnist svo. Það er 3. málsgr. 47. gr., sem fjallar um þetta. Þar stendur, að ef jörðin er seld eða leigð hærra verði en .hér um ræðir, þá falli í gjalddaga það, sem fram hefur verið lagt, eins og málsgr. segir til um. En það stendur ekkert í l. um, að stjórn sjóðsins hafi ekki rétt til að taka í taumana, ef henni sýnist svo. En auðvitað er svo hverjum leyfilegt að draga þær ályktanir af þessu, sem honum sýnist. Það er annað mál, en rétt skal vera rétt.