06.12.1945
Neðri deild: 50. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1086 í B-deild Alþingistíðinda. (1805)

60. mál, raforkulög

Páll Zóphóníasson:

Enda þótt leggja eigi fram frv. á þessu þ., sem veitir lán með svipuðum kjörum og þessum, ef að l. yrði, og þótt búið sé að fella brtt. á þskj. 232, þá segi ég já í trausti þess, að bændum geti komið að notum kjör þau, sem hér um ræðir, ég í trausti þess, að rafmagnsstjóri láni ekki til þeirra sveita, sem rafmagnsveiturnar ná til. En það er sýnilegt, að frv. það, sem hv. 2. landsk. talaði um, mun ekki sjá dagsins ljós á þessu þingi.