14.12.1945
Efri deild: 49. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1092 í B-deild Alþingistíðinda. (1816)

60. mál, raforkulög

Gísli Jónsson:

Að gefnu tilefni vil ég taka fram, að hæstv. ráðh. tekur alveg rangt eftir. Ég átti við stóra fjárhæð, sem var veitt til þessa vegar með þál. á fjárlagaþingi, 500 þús. kr. til Selvogsvegar eða Krýsuvíkurvegar, og að það skyldi ekki koma í þau fjárl., sem þá var verið að afgr. Þessu man hann eftir. Ef það er ekki óþingleg meðferð á fjárveitingum, þá veit ég ekki, hvað er óþinglegt.