03.12.1945
Neðri deild: 47. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í B-deild Alþingistíðinda. (184)

91. mál, gjaldaviðauki 1946

Frsm. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Það lítið, sem ég hef um þetta frv. að segja, er aðeins það, að n. leggur til, að frv. verði samþ. Frv. fer aðeins fram á framlengingu á gildandi l., að gefa stj. heimild til að innheimta með viðauka. ýmis gjöld fyrir 1946. N. hefur borið frv. saman við gildandi l., og fellst hún á, að það verði samþ.