04.12.1945
Neðri deild: 48. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1144 í B-deild Alþingistíðinda. (1953)

28. mál, skólakerfi og fræðsluskylda

Páll Þorsteinsson:

Herra forseti. Við 2. umr. þessa máls lá fyrir brtt. frá mér við 8. gr. þessa frv. en náði ekki samþykki deildarinnar. Ég hef leyft mér að bera fram enn á ný brtt. við sömu gr., sem hnígur í sömu átt og sú brtt. mín, sem lá fyrir við 2. umr. En sú brtt., sem nú liggur fyrir á þskj. 283, felur þó í sér þá efnisbreyt. frá hinni fyrri, að gert er ráð fyrir, að sú undanþága, sem um ræðir í brtt., skuli því aðeins veitt, að samþykki fræðslumálastj. sé áður fengið. Að öðru leyti liggja á bak við þessa brtt. sömu rök, sem ég flutti hér við 2. umr. málsins, og sé ég ekki ástæðu til að endurtaka það.