27.03.1946
Efri deild: 93. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1181 í B-deild Alþingistíðinda. (2023)

28. mál, skólakerfi og fræðsluskylda

Forseti (StgrA) :

Ég frestaði umr. um þetta mál fyrir nokkru síðan, í vikunni sem leið, samkv. beiðni um það, að tækifæri gæfist til þess að ræða málið á flokksfundum, og ég tók málið ekki á dagskrá fyrr en eftir daginn í gær, þegar flokksfundir eru venjulega haldnir. Hins vegar hafði mér ekkert borizt um það, að áframhaldandi samningar stæðu yfir um þessi hliðstæðu mál. En þegar hv. form. n., sem um málið hefur fjallað, fer fram á það, gef ég kost á því, að umr. um málið teljist opin enn þá.