25.03.1946
Neðri deild: 94. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1238 í B-deild Alþingistíðinda. (2131)

21. mál, hafnargerðir og lendingarbætur

Frsm. (Lúðvík Jósefsson):

Herra forseti. Ég vildi fyrir hönd sjútvn. óska eftir því, að hæstv. forseti vildi fresta þessu máli nú. N. hefur ekki unnizt tími til að taka til sérstakrar athugunar þær brtt., sem liggja hér fyrir nú, en vildi geta gert það, áður en gengið verður til atkv. um málið.