26.03.1946
Neðri deild: 95. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1238 í B-deild Alþingistíðinda. (2135)
21. mál, hafnargerðir og lendingarbætur
Sigurður Kristjánsson:
Þegar mál þetta var síðast til umr., lagði ég fram skrifl. brtt. við 2. frvgr., þess efnis, að Elliðaárvogur skyldi felldur niður. Ég sé, að till. er komin fram, og búið er að leita afbrigða.
Ástæðan til þess, að ég óskaði, að staður þessi skyldi numinn brott, var sú, að bæjarstjórn Reykjavíkur hefur ekki fjallað um þetta mál og enga afstöðu því tekið til þess. Ég hef talað við borgarstjóra, og er hann á sama máli og ég. Hins vegar er frv. þannig háttað, að opin leið er til þess að gera á því breyt., ef að 1. verður og þurfa kann að þykja. Liggur því eigi svo mjög á að fá Reykjavíkurhöfn skipt. Við höfum rætt þetta mál í sjútvn., og hefur enginn ágreiningur orðið. Er n. sammála um, að breyt. verði samþykkt.