09.04.1946
Efri deild: 102. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1242 í B-deild Alþingistíðinda. (2148)

21. mál, hafnargerðir og lendingarbætur

Magnús Jónsson:

Ég vildi heldur mælast til, að þetta mál yrði tekið af dagskrá í dag. Mér er kunnugt um, að hv. 6. þm. Reykv. hefði kosið að vera viðstaddur, þegar málið er rætt, en hann er nú fjarverandi.