10.04.1946
Efri deild: 103. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1243 í B-deild Alþingistíðinda. (2157)

21. mál, hafnargerðir og lendingarbætur

Jónas Jónsson:

Ég hef leyft mér að fara fram á það við deildina, að Grenivík verði bætt inn í B-flokk, og ætla að leggja hér fram skrifl. brtt. um það. Grenivík er gömul verstöð, nokkuð erfið, en áhugi mikill þarna fyrir lendingarbótum. Ég hygg, að þetta þurfi ekki frekari skýringar við.